Manneskjan í jakkafötunum

Lenya Rún skrifar um besta stjórnmálafólkið.

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og drögtum, með alvarlegan svip að tala um alvarleg mál. Mér leið eins og þetta fólk væri ósnertanlegt og ætti ekki við nein raunveruleg vandamál að stríða. Klettarnir í hafinu sem gefa aldrei eftir.

Á síðustu mánuðum hef ég hins vegar komist að tvennu. Stjórnmálafólk er eftir allt saman bara fólk – og besta stjórnmálafólkið áttar sig á því.

Einlægni

Það er allt í lagi að hafa tilfinningar og tala við fólk af einlægni. Fyrst og fremst erum við öll mennsk og tilfinningar eins og samkennd og samúð gera okkur að heilsteyptari manneskjum. Það hafa allir gengið í gegnum sína erfiðleika, óháð aldri, og erfið reynsla auðveldar okkur að tengjast og hjálpa öðru fólki. Íslenska þjóðin á skilið að fá fólk á þing sem getur sett sig í spor þeirra hópa sem fá sjaldan raunverulega áheyrn, og það sé gert með samkennd og skilningi að leiðarljósi. Aftur á móti er ennþá ríkjandi sú hugmynd að stjórnmálamaður sem hefur mikla tilfinningagreind sé ekki stöðugur eða ekki nógu sterkur til að takast á við þingstörfin. Að mínu mati er það kjaftæði. Kaldlyndi er ekki styrkleiki.

Eigin takmarkanir

Í stjórnmálum þarf að taka erfiðar ákvarðanir sem einhver verða alltaf ósátt við. Þrátt fyrir að aldrei sé hægt að þóknast öllum þá skiptir máli hvernig stjórnmálafólk kemst að niðurstöðunni sinni – og þá þarf fyrst að horfast í augu við eigin takmarkanir. Enginn er með öll svörin og því er eina leiðin að upplýstri ákvörðun að velta upp öllum hliðum málsins með aðstoð þeirra sem málið snertir. Stjórnmálafólk sem leggst yfir gögnin og rökin, tekur ákvörðun og útskýrir síðan fyrir almenningi hvernig það komst að niðurstöðunni er ekki aðeins líklegra til að taka betri ákvarðanir heldur jafnframt að fólk sýni því skilning. Við verðum kannski ekki sammála, en vönduð vinnubrögð eru virðingarverð.

Hlustum

Framtíðin gæti verið í góðum höndum. Ungt fólk er upplýst um málefni líðandi stundar og við látum fjölbreytt málefni okkur varða. Á síðustu mánuðum höfum við séð hávært ákall frá ungu fólki um sanngjarnara kvótakerfi, alvöru aðgerðir í loftslagsmálum, nýja stjórnarskrá, mannúðlega útlendingastefnu o.s.frv. Ein stærsta krafa ungs fólks er hins vegar ekki sérstaklega flókin: Að það sé einfaldlega hlustað á það – og því segi ég að framtíðin gæti verið í góðum höndum. Ef við hlustum.

Ísland er að verða sífellt fjölbreyttara og með aukinni fjölbreytni á þjóðfélag það til að skiptast í hópa. Ríkt fólk og fátækt fólk, Íslendingar og útlendingar, ungir og gamlir, heilbrigt fólk og veikt fólk og svo lengi mætti telja. Til að koma í veg fyrir sundrung er mikilvægt að raddir allra hópa heyrist og að það sé raunverulega hlustað á þær, af einlægni og af fólki sem vill heyra. Að hlusta felur í sér að geta sett þig í spor annarra, ekki líta á þau sem tölur og prósentur á einhverju líkani. Mér finnst oft gleymast þegar mál eru rædd á Alþingi að það er verið að tala um aðgerðir sem snerta raunverulega hagsmuni raunverulega landsmanna sem hafa raunverulegar og stundum íþyngjandi afleiðingar.

Besta stjórnmálafólkið áttar sig á því að það hefur ekki öll svörin. Sem áttar sig á því að besta leiðin til að komast að góðri niðurstöðu er að kynna sér gögnin, hlusta á fólk af alvöru og hafa samkennd til að setja sig í spor annarra. Stjórnmálafólk sem veit að það er eftir allt saman bara manneskja í jakkafötum.

Höfundur skipar þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Rasismi á Íslandi

Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin....

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...