Kosninga­réttur náms­manna er­lendis skertur

Í ljósi þess hvernig til tókst við síðustu kosningar hefði mátt ætla að mikil metnaður yrði lagður í að næstu kosningar þann 14. maí gengju sem allra best. Nú þegar eru komnar fram alvarlegar brotalamir og fyrirséð að þeim fjölgi.

Það er mikilvægt fyrir kjósendur að fyrirkomulagið sé fyrirsjáanlegt

Flest myndu ganga út frá því að kosningalög eins og þau eru birt á vef Alþingis innhéldu tæmandi upplýsingar um framkvæmd kosninga. Svo er ekki, því þeim var breytt 15. mars síðastliðin og frestur námsmanna erlendis til að senda Þjóðskrá umsókn til að neyta kosningaréttar þannig styttur með einungis 22 daga fyrirvara. Þetta virðist vera til að kjörskráin sé tilbúin fyrr svo staðfesta megi framboð tímanlega.

Kjósandi ætti alltaf að njóta vafans

Þetta er allt of skammur tími til að breyta dagsetningum og skerða rétt kjósanda. Vel hefði mátt vinna bráðabirgðakjörskrá til viðmiðunar en síðan gefa út breytingaskrá og para þær saman við frambjóðendur og meðmæli. Þar með er þessi breyting ekki nauðsynleg og þó hún sé hugsanlega heppileg fyrir stjórnvöld þá ætti kjósandinn að njóta vafans.

Breytingin lítið sem ekkert kynnt

Við lestur kosningalaga er ekkert sem bendir til að þessi breyting hafi verið gerð. Engin sérstök tilraun virðist hafa verið gerð til að kynna þetta fyrir aðilum. Í ljósi þess að með þessu skapast allnokkur hætta á að kjósendur verði af kosningarétti, var ærið tilefni til þess að kynna breytinguna vel en hennar er ekki einu sinni getið á upplýsingavef kosninganna.

Jákvæð atriði lagabreytingarinnar

Það eru samt nokkur góð atriði við þessa lagasetningu. Ójafnvægi þingmannafjölda Suðvesturkjördæmis er leiðrétt og stenst nú stjórnarskrá og ekki lengur verður hægt að meta ógilda utankjörfundarseðla vegna þess að áritun kjörstjóra vantaði. Því verður ekki hætta á að kjósandi verði af kosningarétti fyrir handvömm kjörstjóra.

Fyrirsjáanleg vandamál

Í janúar skrifaði ég grein þar sem ég benti á að Suðvesturkjördæmi hefði tapað þingmanni. Sú skekkja leiðréttist með þessari lagabreytingu en mun betra hefði verið að gera þessar breytingar strax til að gefa kjósendum almennilegan fyrirvara. Það er þá líka ljóst að hefði komið upp stjórnarkreppa á tímabilinu frá áramótum hefði verið brot á stjórnarskrá að ganga til Alþingiskosninga.

Enn ekki búið að setja nauðsynlegar reglugerðir

Þetta er ekki eina dæmið um að undirbúningur fyrir kosningarnar sé ófullnægjandi, heldur vantar ennþá að gefa út margar reglugerðir. Reglugerðir þarf að gefa út tímanlega til að hlutaðeigendur geti kynnt sér fyrirkomulagið. Meðal annars hefur ekki verið gefin út reglugerð varðandi frágang kjörgagna að talningu lokinni. Skortur á þeirri reglugerð varð til þess að Lögreglustjórinn á Vesturlandi felldi niður mál á hendur Inga Tryggvasyni. Þetta tómlæti ráðherra að setja nauðsynlegar reglugerðir hefur því þegar haft afleiðingar og ljóst að þær verða meiri.

Mikilvægi kosningaeftirlits aldrei meira

Það er því ljóst að mikilvægi kosningaeftirlits verður síst minna í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í ljósi þess að verið er að breyta kosningalögum þegar innan við 2 mánuðir eru til kosninga, að enn vantar reglugerðir sem þarf til að kosningar geti farið fram og þess tíma sem er til stefnu eru nær engar líkur á því að fyrirvarinn verði nægur.

Það hefði verið frábært hefðu þessar kosningar gengið fumlaust fyrir sig þar sem hætt er við að framkvæmdin verði að allnokkru leyti fordæmisgefandi. Við Píratar munum því verða á vaktinni til að gæta hagsmuna kjósenda.

Höfundur er varaþingmaður Pírata og á lista Pírata í kosningum til bæjarstjórnar Kópavogs.

Upprunaleg birtingvisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...