Kakan er lygi

Öryrkjabandalag Íslands gaf út myndband þann 11. október síðastliðinn þar sem kaka fjármálaráðherra var útskýrð frá sjónarhorni öryrkja. Skilaboðin voru einföld, það fá ekki allir að njóta.

Fjármálaráðherra fannst greinilega tilefni til þess að svara þessu myndbandi ÖBÍ.

Ég heyri ákall Öryrkjabandalagsins um að hækka bætur enn frekar. Myndband þeirra er hins vegar misheppnað, þótt kakan sé falleg eftirmynd af þeirri sem ég gerði. Það dugar ekki til, því það er rangt að öryrkjar fái sífellt minni sneið. Kakan hefur stækkað og almannatryggingar hafa fengið stærri sneið af stækkandi köku.

Þann 19. september 2018 bað ég rannsóknarþjónustu Alþingis að taka saman fyrir mig gögn um þróun lífeyris skv. 69. gr. almannatryggingarlaga sem segir.

Bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Raunverulegt hjá ráðamönnum, áætlað hjá öryrkjum 

Neðst í þessum pistli eru þessar upplýsingar teknar saman í einfalda töflu. Frá því að lög um almannatryggingar voru sett árið 1997 hefur lífeyrir almannatrygginga ekki hækkað samkvæmt launaþróun eða verðbólgu í 18 skipti á þeim 24 árum. Ef hækkun lífeyris hefði ávallt haldið í við launa- eða verðlagsþróun væri lífeyrir nú 56% hærri en hann er. Ef kjaragliðnun á næsta ári verður sú sama og hún hefur verið að meðaltali á undanförnum tveimur áratugum verður uppsöfnuð kjaragliðnun orðin 59%.

Svo virðist sem ákveðið hafi verið að túlka lögin á þann hátt að hækkun lífeyris myndi aðeins miðast við áætlaða þróun launa eða neysluverðs. Ekki raunverulega hækkun. Það er einstaklega kaldhæðnislegt ef nýleg lög um laun æðstu ráðamanna eru skoðuð, þar skal reikna raunverulega hækkun. Þess vegna hækkuðu laun þingmanna um 6,3% í upphafi árs 2020 á meðan lífeyrir örorku hækkaði einungis um 3,5%.

Eins árs afmæli ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fagnað með köku í nóvember 2018.VÍSIR/VILHELM

Lygi í launaumslaginu 

Skilaboðin eru einföld. Kakan hefur stækkað en hver og einn lífeyrisþegi fær minna og minna af kökunni. Fyrir lífeyrisþega almannatrygginga er kakan lygi. Fjármálaráðherra reynir að hylma yfir þessa staðreynd með því að tala um heildargreiðslur í kerfi almannatrygginga. Það er svona „tæknilega“ satt en ekkert nema lygi þegar launaumslag hvers og eins er skoðað. Fjölgun öryrkja er sjálfstætt vandamál sem á ekki að bitna á kjörum einstakra lífeyrisþega. Það væri eins og að lækka alla í launum þegar nýr starfsmaður er ráðinn inn á vinnustað. Heildarlaunagreiðslur hækka kannski en laun allra lækka á sama tíma.

Umræðan um lífeyri almannatrygginga er aldrei einföld af því að kerfið er svo gríðarlega flókið. Það eru alls konar viðbætur hér og þar í kerfinu sem hafa hækkað mismikið á undanförnum árum. Þær breytingar hafa haft áhrif á ákveðna hópa innan almannatryggingarkerfisins. Hér er um að ræða bensínstyrk, ummönnunargreiðslur, barnalífeyri og ýmislegt fleira. Á móti koma svo skerðingar þannig að hækkun á einum stað veldur lækkun á móti.

Bjarni túlkar fyrir Ásmund 

Þetta þýðir að það er aldrei hægt að draga upp einfalda samanburðarmynd. Hún er alltaf háð ákveðnum skilyrðum. Sú mynd sem ég dreg upp er með tilvísun í mjög skýran lagatexta almannatryggingarlaga og hvernig fjármálaráðuneytið ákveður að túlka þann lagatexta. Það er áhugavert út af fyrir sig að það sé fjármálaráðuneytið sem tekur að sér að túlka þessi lög því þau eru á ábyrgð félags- og barnamálaráðherra.

Þetta eru þær forsendur sem ég gef mér, lagatextinn. Ég vil vekja athygli á því hvernig sá texti er túlkaður og hvaða afleiðingar sú túlkun hefur í raun og veru. Ég endurtek lagatextann.

Bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Lykilatriðið hérna er „í samræmi við fjárlög hverju sinni.“ Á sama tíma „skal taka mið af launaþróun“ og „aldrei minna en verðlag.“ Laun þingmanna voru hækkuð afturvirkt, eftir að það var búið að reikna út raunverulega launaþróun. Það er ekkert sem segir að slíkt hið sama eigi ekki að gilda um útreikninga vegna lífeyris almannatrygginga. Fyrri lagagrein almannatryggingarlaga sagði meira að segja að ráðherra skyldi hækka upphæðir bóta innan sex mánaða ef breyting yrði á vikukaupi í almennri verkamannavinnu. Það er hækkun samkvæmt raunaukningu.

Lagatæknilegir fimleikar 

Það ætti að vera augljóst öllum sem lesa texta laganna að ætlunin er að lífeyrir almannatrygginga hækki aldrei minna en raunveruleg launaþróun eða vísitala neysluverðs, hvor sem er hærri. Annað væri bókstaflega galið. Einhvern veginn hefur fjármálaráðuneytið hins vegar náð að snúa út úr með einhvers konar lagatæknilegum fimleikum og Alþingi hefur leyft því að viðgangast. Kökunni er lofað en loforðið er svikið.

* miðað við sept 2019 – sept 2020** áætlun skv. fjárlagafrumvarpi 2020

Höfundur er þingmaður Pírata.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Rasismi á Íslandi

Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin....

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...