Heil­brigðis­kerfi í þágu þjóðar

Píratar vilja tryggja jafnt aðgengi landsmanna að allri almennri heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og að sú þjónusta sé alfarið gjaldfrjáls. Auka þarf réttindi sjúklinga og starfsfólks og efla forvarnir, ekki hvað síst þegar kemur að geðheilbrigðismálum.

Þrátt fyrir að núverandi ríkisstjórn hafi staðið sig vel í baráttunni gegn kórónuveirunni hefur það álag sem fylgdi faraldrinum afhjúpað þann fjárskort sem heilbrigðiskerfið býr við og óviðunandi starfsskilyrði starfsfólks. Ákall hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, lækna og annarra stétta innan heilbrigðisgeirans, um umbætur er hávært og við því þarf að bregðast án tafar.

Fyrir utan auknar fjárveitingar er grunnurinn að góðu heilbrigðiskerfi starfsfólkið sem starfar innan kerfisins. Stjórnmálamenn eru duglegir að hrósa starfsfólki á tyllidögum en mættu vera duglegri að láta verkin tala og svara ákalli starfsfólks. Verk ganga alltaf orðum framar.

Í samtölum Pírata við starfsfólk í heilbrigðiskerfinu ber allt að sama brunni en flestir nefna aukið fjármagn og að bæta þurfi starfsskilyrði. Í fyrsta lagi þarf að hækka laun allra starfsstétta í heilbrigðiskerfinu. Í öðru lagi þarf að stytta vinnutíma og tryggja að hann sé unninn á tíma sem er fjölskylduvænn að því marki sem hægt er. Í þriðja lagi verður starfsfólk að geta haft bein áhrif á starfsumhverfi sitt. Ábendingar varðandi úrbætur koma iðulega frá starfsfólki og það er hlutverk stjórnenda að bregðast við slíkum ábendingum af ábyrgð, festu og hraða. Þetta á við um tækjabúnað, skipulagningu starfa og annað sem getur leitt til betri þjónustu við sjúklinga.

Afleiðing óviðunandi starfsskilyrða í heilbrigðiskerfinu er skortur á starfsfólki. Það vantar sárlega fleiri sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og lækna til starfa, ekki síst á landsbyggðinni. Því miður kemur starfsfólk, sem hefur menntað sig erlendis, ekki tilbaka í þeim mæli sem æskilegt væri. Það mun ekki breytast fyrr en laun hækka, vinnutími styttist og starfsfólki gefst raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á starfsumhverfi sitt.

Ef starfsskilyrði starfsfólks eru aðlaðandi er auðveldara að tryggja mönnun í byggðakjörnum um land allt. Allir íbúar landins eiga skilyrðislausan rétt til fullnægjandi grunnþjónustu og þar skiptir heilbrigðisþjónusta lykilmáli og er í raun forsenda byggðar í landinu.

Kosningar til Alþingis fara fram þann 25. september næstkomandi. Núverandi ríkisstjórn hefur haft fjögur ár til þess að bæta stöðu heilbrigðiskerfisins. Ef kjósendur vilja raunverulegar breytingar þarf að gefa nýjum flokkum og nýju fólki tækifæri. Þar kemur hreyfing Pírata sterklega til greina sem frjálslynt og félagshyggjusinnað umbótaafl í íslensku samfélagi. Hreyfingin hefur starfað í tæpan áratug og unnið sér traust landsmanna á því tímabili með skeleggri þjóðfélagsumræðu og öflugri stjórnarandstöðu á Alþingi. Erindi Pírata í stjórnmálum hefur aldrei verið eins aðkallandi og nú er.

Setjum sjúklinga og starfsfólk í heilbrigðiskerfinu í forgang strax í upphafi næsta kjörtímabils. Starfsfólk í heilbrigðisgeiranum hugsar vel um okkur þegar veikindi ber að garði. Hlutverk stjórnmálamanna er að meta störf þeirra að verðleikum og svara ákalli um aukið fjármagn og bætt starfsskilyrði. Verk ganga orðum framar.

Höfundur er oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...