Ham­farir hjá Heilsu­vernd – Hvað kemur næst?

Oddviti Pírata í NA-kjördæmi skrifar um hjúkrunarheimili á Akureyri

Á föstudag í síðustu viku bárust þær fréttir að Heilsuvernd – Hjúkrunarheimili, sem tók við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar í byrjun maí sl., hefði sagt upp vel á þriðja tug starfsfólks, sem sumt átti að baki áratuga starfsreynslu hjá stofnuninni. Þessar fréttir voru veruleg vonbrigði en komu fæstum þó á óvart.

Undirritaður hefur fylgst vel með málefnum ÖA til margra ára, m.a. vegna persónulegra tengsla við starfsfólk (og vegna þátttöku í pólitík) og hefur ekki dulist hversu frábært starf hefur verið unnið þarna í þágu þeirra sem þarna eiga sitt heimili eða nýta sér tímabundna og afmarkaða þjónustu á borð við dagþjálfun eða hvíldarinnlagnir, svo dæmi séu nefnd.

Undirritaður hefur leitað svara hjá Ásthildi Sturludóttur, bæjarstýru, varðandi ýmislegt sem snýr að krónum og aurum og er reyndar ýmislegt óljóst enn í þeim efnum. Það er þó ekki efni þessa pistils, heldur er ætlunin að fjalla um fólkið sem þetta hefur áhrif á, starfsfólkið og íbúana.

Eitt atriði hefur ekki farið hátt, en það er sú staðreynd að einhverjum einstaklingum var ekki sagt upp heldur var þeim boðið að skrifa undir samkomulag um starfslok. Það hlýtur að teljast aumt þegar einstaklingur, sem er í áfalli vegna uppsagnar, er hálfpartinn plataður til að undirrita plagg þar að lútandi, mjög fljótt eftir að hafa fengið „gleðitíðindin“ um starfslok. Undirritaðan skortir þekkingu til að dæma hvers vegna sumu starfsfólki var stillt upp við vegg með þessu móti, en vonandi þýðir það ekki réttindamissi af neinu tagi.

Í útvarpsþætti um liðna helgi svaraði Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, þeirri spurningu hvort þetta væri „síðasta aðgerðin í þessum anda“, þ.e. hópuppsagnir starfsfólks, með eftirfarandi orðum:

„Ja, það er auðvitað aldrei hægt að lofa því, en það er í bili hugsunin, já og það er auðvitað það sem við erum að horfa til.“ Svo bætti hann við: „Markmiðið er, bara svo það sé sagt, að viðhalda þeirri frábæru þjónustu sem verið hefur, eins og hægt er, með því góða starfsfólki sem þarna hefur verið og halda áfram en nýta tækifærin.“

Þessi orð virka ekki sérlega traustvekjandi, sérstaklega ef þau eru skoðuð í samhengi við eftirfarandi klausu sem birtist í bréfi sem Teitur sendi starfsfólki öldrunarheimilanna sl. föstudagskvöld:

„Unnið er að því að mögulegt verði að bjóða sem flestu núverandi starfsfólki áframhaldandi starf og hyggst HH bjóða þeim nýja ráðningarsamninga sem munu taka við af fyrri samningum og kjörum …“

Nokkrum klukkustundum fyrr, þ.e. föstudaginn 18. júní tilkynnti Teitur starfsfólki að fundur yrði boðaður í næstu viku, þ.e. þessari sem nú er runnin upp og sagði að fólk skyldi búa sig undir hann, hvað sem það á nú að þýða. Umræddur fundur starfsfólks með Teiti hefur verið boðaður föstudaginn 25. júní.

Af íbúum er það helst að frétta að þeir fá ekki lengur notið þjónustu eins helsta sérfræðings landsins í heilabilun (Alzheimer), þar sem viðkomandi hjúkrunarfræðingur hefur verið látinn taka pokann sinn. Í því samhengi verður fróðlegt að sjá hvort Heilsuvernd verði gert að framfylgja aðgerðaáætlun Heilbrigðisráðuneytisins um þjónustu við fólk með heilabilun, sem Svandís Svavarsdóttir kynnti með stolti fyrir rúmu ári.

Íbúarnir fá ekki heldur notið þjónustu þess starfsfólks sem innleiddi Eden-stefnuna fyrir rúmum tíu árum og hefur tryggt framgang hennar og þróun æ síðan.

Vonandi verða næstu fréttir af þess þessu máli ánægjulegri en þær sem hingað til hafa borist.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...