Göng? Engin göng?

Í vikunni kom í ljós að samgönguáætlun er vanfjármögnuð. Það hefði ekki átt að koma á óvart, en gerði það samt. Þannig er það venjulega. Ástæðan fyrir því að það kom á óvart í þetta skipti er vegna þess að Alþingi afgreiddi tvær samgönguáætlanir á kjörtímabilinu. Fyrst samgönguáætlun fyrir árin 2019 – 2023 (ásamt 15 ára áætlun) og svo var samgönguáætlun uppfærð fyrir árin 2020 – 2024 (ásamt 15 ára áætlun). Mikið var gert úr því í fyrri samgönguáætluninni að hún væri fullfjármögnuð, eða eins og forsætisráðherra sagði í atkvæðagreiðslu um málið: „Ég tek undir með þeim sem fagna því að hér liggur fyrir fullfjármögnuð samgönguáætlun.“

Sú fullyrðing stóðst nú ekki lengi því strax á næsta þingi var lögð fram ný samgönguáætlun með innbyggðri vanfjármögnun. Eða eins og samgönguráðherra sagði í framsögu sinni: „Á árunum 2022–2024 er þó gert ráð fyrir að útgjöld til nýframkvæmda á vegakerfinu verði 1,5 milljarðar kr. umfram ramma fjármálaáætlunar. Við þurfum sem sagt meira fé.“

Þetta ætti ekki að vera neitt vandamál því ríksstjórnin átti eftir að leggja fram nýja fjármálaáætlun fyrir árin 2021 – 2025 og enn fremur síðustu fjármálaáætlun sína fyrir árin 2022 – 2026. Það var því nægur tími fyrir ríkisstjórnina til þess að fjármagna þessa samgönguáætlun sína. Það sem gerðist áður en næsta fjármálaáætlun var lögð fram á þingi var heimsfaraldur. Þannig að í stað þess að leggja fram fjármálaáætlun fyrir árin 2021 – 2025 strax um vorið 2020, til þess að sýna fram á hvernig stjórnvöld ætluðu að beita opinberum fjármálum út úr faraldrinum, þá frestuðu stjórnvöld því fram á haust. Fjármálaáætlun fyrir árin 2021 – 2025 var því ekki samþykkt fyrr en í desember 2020, ásamt fjárlögum. Það sem vantaði í þá fjármálaáætlun var að fjármagna uppfærða samgönguáætlun.

Það má segja sem svo að þingið hafi verið ansi upptekið við að sinna viðbrögðum við faraldrinum í desember 2020 þannig að ég man ekki eftir því að neinn hafi verið að leita að því hvort samgönguáætlun hafi verið fullfjármögnuð í nýrri fjármálaáætlun. Að minnsta kosti eru engar umsagnir sem fjalla um þetta nýja fé sem vantar né kom það fram í kynningu samgönguráðuneytisins. Vegagerðin minnir ekki á þetta í fjármálaáætlunarferlinu heldur. Engar vísbendingar um að sú áætlun sem þingið samþykkti sé áfram ófjármögnuð. Samt er talað um stórátak í samgöngumálum – sem er svo sem alveg satt, það er bara ófjármagnað um 1,5 milljarð á ári frá og með næsta ári. Það er að segja, eftir kosningar.

Nú gæti einhver sagt, og talsmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa svo sem sagt það líka, að það sé bara verkefni næstu ríkisstjórnar að skipuleggja ríkisfjármálin. Á meðan það er auðvitað satt og rétt, þá skipulagði þessi ríkisstjórn líka ófjármagnaðar samgönguframkvæmdir á næsta kjörtímabili og kallar það stórátak. Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu. Það er ekki bæði hægt að skipuleggja framkvæmdir og sleppa því að fjármagna þær – varpa bara ábyrgðinni á því að fjármagna skipulag þessarar ríkisstjórnar yfir á næstu ríkisstjórn.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar svarar samgönguráðherra frétt RÚV um að það vanti 4 milljarða til þess að hefja framkvæmdir á tilsettum tíma. Þessar upplýsingar komu fram á fundi fulltrúa Múlaþings með Vegagerðinni. Á nokkurn veginn sama tíma er Vegagerðin að tilkynna umhverfis- og samgöngunefnd að samgönguáætlun sé vanfjármögnuð um 1,5 milljarða árin 2022 – 2024. Allt þetta er mjög óljóst því ég skildi það sem svo að það vantaði 1,5 milljarð samtals fyrir árin 2022 – 2024 á fundi samgöngunefndar, en samgönguáætlun segir að það vanti 1,5 milljarð á ári. Það er mjög algengt að svona upplýsingar séu ekki settar nægilega skýrt fram en málið er auðvitað þeim mun alvarlegra ef það vantar þremur milljörðum meira en ég taldi hafa komið fram á fundinum. Til viðbótar við þetta bætast svo 4 milljarðar vegna gangnaframkvæmda – sem ég átta mig heldur ekki á hvernig virkar því samkvæmt samgönguáætlun á að fara milljarður í verkefnið á hverju ári frá 2022 til 2024. Hvers vegna það vantar þá 4 milljarða til þess að hefja framkvæmdir á áætlun árið 2022 er því ofar mínum skilningi.

Þá kemur að svari samgönguráðherra í þessari upplýsingaflækju og ekki bætir það svar neinu við málið til þess að auka skýrleika þess. Þar segir samgönguráðherra að kannski byrji framkvæmdir árið 2023 en bætir við að „það er ekkert sem bendir til þess að neitt sem hefur komið upp í þessu ferli seinki framkvæmdartímanum eða lokum verksins. Ekki neitt“ og enn fremur að „undirbúningurinn er á algerlega eðlilegum hraða.“ Það getur vel staðist að verklok verði samkvæmt áætlun en það mun óhjákvæmilega verða erfiðara að standa við það ef framkvæmdir hefjast ekki fyrr en ári seinna, og þá bara kannski. Þar sýnist mér ráðherra vera að lofa ansi miklu upp í ermina, sérstaklega af því að hann svarar engu um það hvort það sé rétt, að það vanti 4 milljarða í verkefnið. Við það bætast svo þeir 4,5 milljarðar sem eru ófjármagnaðir fyrir árin 2022 – 2024, eða hvað?

Hvað þýðir þetta allt saman? Allur þessi upplýsingaþvælingur, milljarðar hingað og þangað – fleiri í samgönguáætlun en fjármálaáætlun. Þetta þýðir að ríkisstjórnin sem ætlar að halda áfram að vinna saman eftir næstu kosningar (fái hún til þess nægilega mörg atkvæði) ætlar að redda því sem hún gat ekki reddað á þessu kjörtímabili. Það hlýtur að vera ansi stór spurning um það hvernig í ósköpunum sú ríkisstjórn ætlar að leysa þennan vanda þá ef hún getur það ekki núna? Hingað til hefur ríkisstjórnin ekki svarað því á neinn hátt nema að það verði áskoranir næstu ríkisstjórnar að leysa þann vanda sem núverandi ríkisstjórn hefur ekki getað leyst. Þar skilur ríkisstjórnin eftir sig vanfjármagnaða samgönguáætlun, neyðarástand í heilbrigðiskerfinu og banka sem var seldur á útsöluverði svo eitthvað klúður sé nefnt frá hverjum stjórnarflokk. Ef eitthvað er samgönguáætlunin þó minnsta klúðrið, það var allavega bætt töluvert í framkvæmdir þrátt fyrir vanfjármögnun – svo einhverrar sanngirni sé gætt. En klúður er það nú samt að skipuleggja framkvæmdir en geta svo ekki fjármagnað eigið skipulag.

Verkefnin framundan eru fjölmörg en til að byrja með þarf að finna þennan hníf sem stendur í kúnni en samgönguráðherra virðist ekki sjá. Ég held að hnífurinn sé í raun núverandi ríkisstjórn.

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...