Geð­heil­brigðis­stefna Pírata

Heilbrigðismál eru eitt stærsta pólitíska málið í komandi kosningum. Nú sem aldrei fyrr sjáum við hversu mikilvæg heilbrigðisþjónusta er og hvað fjárfestingar í henni geta skilað sér margfalt til baka.

Í umræðu um heilbrigðiskerfið má alls ekki undanskilja geðheilbrigðisþjónustuna – síst af öllu í Covid-ástandi sem einkennist af óvissu, kvíða, glötuðum tækifærum og missi hvers konar. Píratar hafa birt metnaðarfulla kosningastefnu og þar er sérstaklega tekið á geðheilbrigðismálum:

„Geðheilbrigðiskerfið er ekki fullfjármagnað og að það verður að gefa í. Þetta á ekki síður við í kjölfar heimsfaraldurs. Við viljum líka tryggja að fjármagnið nýtist vel með því að sjá til þess að í geðheilbrigðisþjónustu sé lögð áhersla á forvarnir, fyrirbyggjandi aðgerðir og snemmtæka íhlutun. Horfa þarf heildrænt á stefnu og aðgerðir stjórnvalda með tilliti til áhrifa á geðheilsu almennings.“

Hvað þýðir þetta í raun?

Með þessu er átt við að í stað þess að hlaupa til og slökkva elda eftir að þeir kvikna þarf að fjárfesta mun sterkar í því að fyrirbyggja vandamál áður en þau vaxa, auðvelda aðgengi fólks að svokallaðri lágþröskuldaþjónustu (þar sem ekki þarf að vera kominn upp mikill vandi til að fólk komist inn fyrir dyr) og vera vakandi fyrir því hvernig geðheilbrigðismál eru alls ekki afmarkaður málaflokkur heldur geta alls konar ákvarðanir haft beint sem óbein áhrif á geðheilsu þjóðarinnar. Sóttvarnaaðgerðir valda til að mynda aukinni félagslegri einangrun sem kemur verr niður á fólki sem er einangrað fyrir. Þessar byrðar, eins þungar og þær eru, dreifast ekki jafnt á okkur öll og því þarf að vera vakandi fyrir því hvernig hægt er að styðja við þau sem verst verða úti í gegnum ástandið.

Hér er allra nærtækast að nefna niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Lög hafa verið sett um þetta en það hefur hvorki verið útfært né fjármagnað. Það er í raun algjört hneyksli að þetta sé ekki sett í forgang á tímum þar sem þörfin hefur aldrei verið augljósari. Einnig má nefna hópa sem þurfa sérhæfða þjónustu sem hefur verið af skornum skammti hingað til, svo sem fólk með tvígreiningu, einhverfa og fólk sem glímir við átröskun. Eins þarf að huga að aðgengi fólks um allt landið en miklir misbrestir eru á því hvers konar þjónusta er veitt eftir því hvar fólk er búsett. Fjárfestum duglega í þessu öllu strax í stað þess að bíða eftir því að afleiðingar Covid-ástandsins komi almennilega fram.

Fræðsla fyrir börn – fræðsla fyrir aðstandendur

Besta leiðin til að draga úr fordómum og valdefla fólk til að taka ábyrgð á sinni eigin geðheilsu er í gegnum fræðslu og þar er mikilvægt að byrja snemma. Útfærum hæfniviðmið um þekkingu á geðheilbrigði og einkennum algengra geðkvilla í aðalnámskrá og styðjum við getu kennara til að tileinka sér þessa þekkingu. Það er líka mjög mikilvægt að aðstandendur, sem oft eru líka börn, fái staðgóða fræðslu um hvað er í gangi hjá þeim sem þeim standa nærri og það þarf líka að styðja aðstandendur almennt, umfaðma þá og draga úr álaginu sem allt of oft lendir á aðstandendum þeirra sem glíma við geðrænar áskoranir.

Réttindi notenda í forgang

Svo má ekki gleyma réttindum notenda þjónustunnar. Í geðheilbrigðisþjónustu er það mjög sértækt áskorunarefni sökum þess að þar er stundum gripið til þvingana og viðhorfin til notenda geta því miður ennþá litast af gamalgróinni forræðishyggju og fordómum. Það þarf að endurskoða löggjöf um málaflokkinn og auka rétt fólks til að sækja rétt sinn gagnvart kerfinu en hann er veikur eins og er. Á móti stórefla úrræði og aðferðir sem byggjast ekki á þvingunum og þar hjálpar að sjálfsögðu að byrja fyrr, áður en í óefni er komið.

Þetta áhersluatriði helst að sjálfsögðu í hendur við það sem Píratar hafa haft á sinni stefnuskrá frá upphafi – afglæpavæðingu neysluskammta vímuefna. Það er löngu tímabært að hætta að refsa fólki fyrir að vera haldið fíknivanda og bjóða því inn úr kuldanum. Þarna er ein ákvörðun stjórnvalda – að refsa veiku fólki – augljóslega að hafa neikvæð áhrif á geðheilsu þess hluta þjóðarinnar sem verður fyrir barðinu á þessari ómannúðlegu stefnu. Heilbrigðisráðherra steig það djarfa skref á síðasta kjörtímabili að leggja fram eigið frumvarp um afglæpavæðingu eftir að Píratar höfðu ýtt á eftir því í mörg ár – en þingheimur hafði ekki hugrekki til að klára dæmið. Þetta er því enn og aftur kosningamál og það verður aldrei af Pírötum tekið að enginn flokkur hefur barist harðar fyrir því á þingi.

Að sama skapi þá erum við með skýra og víða sýn á geðheilbrigðismál almennt og munum halda áfram að berjast fyrir umbótum á því sviði.

Höfundur er í 3. sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi Suður í Alþingiskosningum í haust.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...