Brauðbakstur ríkisins

Þegar Laffer-kúrfan svokallaða var kynnt stimplaði hún sig vel inn meðal æðstupresta nýfrjálshyggjunnar. Hún réttlætti enda skattalækkanir fyrir tekjuháa; með skattalækkunum hefðu þeir ríku meira fé á milli handanna, þeir yrðu duglegri og kenningin var sú að auðurinn myndi að lokum leka niður allt þjóðfélagið og þannig skila sér til allra. Kenning sem við kennum við brauðmola í dag.

Það kom hins vegar á daginn að molarnir féllu ekki langt, döguðu oftast uppi á bankareikningum á hitabeltiseyjum og urðu því fáum til gagns. En kenningin er lífseig og er oft notuð af spunameisturum til að réttlæta skattalækkanir, þrátt fyrir að hafa aldrei virkað eins og spunameistararnir segja. Þvert á móti er tilfellið það sama og alltaf, brauðmolarnir skila sér mjög stutt.

Brauðbaksturskenningin

Hugmyndin að koma peningum inn í hagkerfið sem ganga mann af manni er samt góð, en ef peningarnir stoppa á bankareikningum gagnast þeir fáum. Skynsamlegasta leiðin til þess er því ekki að láta peningana leka niður hagkerfið – heldur að láta þá rísa upp hagkerfið. Í stað þessi að láta brauðmolana detta niður leyfum við brauðinu að hefast upp.

Það gerum við með því að lækka skatta á hin fátæku og láta þau hafa meira á milli handanna. Fátækt fólk felur ekki peninga sína í skúffu á Tortóla heldur nýtir þá til að bæta líf sitt og sinna nánustu, kaupir vörur og þjónustu sem svo keyrir atvinnulífið áfram. Það skilar sér svo auðvitað í ríkiskassann að lokum í formi annarra skatta og gjalda, þannig að beinn “kostnaður ríkisins” af skattalækkunum til fátækra er því minni en spunameistararnir reyna að telja þér trú um.

Að sama skapi er beinn kostnaður ríkisins af fátækt gríðarlegur, sem taka þarf með í reikninginn. Álagið sem fylgir því að strita í láglaunastarfi – jafnvel fleiri en einu – samhliða því að hafa stöðugar áhyggjur af afkomu sinni er ávísun á kulnun og kulnaður einstaklingur snýr svo sannarlega engum hjólum atvinnulífsins. Lélegt húsnæði er heilsuspillandi og heilsuveill einstaklingur hefur takmarkað svigrúm til að gefa af sér. Að lyfta fólki úr fátækt er nefnilega ekki bara sanngirnismál heldur jafnframt skynsöm stefna í heilbrigðis-, félags- og efnahagsmálum.

Réttlát stefna

Skattastefna Pírata er þess vegna svo einföld að henni má lýsa í tveimur orðum: Hún er framsækin (e. progressive) og græn. Það þýðir að litli maðurinn beri ekki byrðarnar og að við verðlaunum það sem er loftslagsvænt. Þannig lyftum við ekki aðeins fólki upp úr fátækt, sem er skynsamlegt að öllu leyti, heldur sjáum einnig til þess að öll geti tekið þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar óháð efnahag. Það eru réttlátu umskiptin sem við þurfum.

Það hefur sennilega ekki farið framhjá neinum að það eru kosningar framundan. Kjósendur hafa marga valkosti, einn þeirra eru Píratar sem standa fyrir lýðræði, nýja stjórnarskrá, græna umbreytingu, alvöru varnir gegn spillingu, breytingar í sjávarútvegi, velsæld og ekkert kjaftæði. Kynntu þér endilega málið á piratar.is/kosningastefna

Höfundur er frambjóðandi Pírata til Alþingiskosninga 2021.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...