Berjumst gegn bakslaginu

Í faraldrinum hefur orðið bakslag í jafnréttismálum um allan heim, sem birtist m.a. í auknu heimilisofbeldi á Íslandi og víðar. Þrátt fyrir að faraldurinn hafi gert illt verra voru engu að síður blikur á lofti í jafnréttismálum áður en fyrsta covid-veiran skaut upp kollinum.

Síðustu ár hefur aðalritari Sameinuðu þjóðanna ítrekað hvatt ríki heims til dáða í jafnréttismálum. Aðalritarinn hefur minnt á að áunnin réttindi geti glatast og því þurfi alltaf að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur. Í því samhengi talar hann ekki bara um bakslag, heldur hreinlega „pushback“ – að verið sé að þrýsta á móti. Það undirstrikar að ekki er um er að ræða einhverja tilfallandi þróun heldur skipulagða aðför afturhaldssamra afla í pólitík, sem vilja „þrýsta jafnréttinu aftur.“

Tangarsókn afturhalds í Evrópu

Við þurfum ekki að leita langt til að sjá þessa aðför í verki. Í Póllandi hefur t.a.m. verið þrengt að réttindum fólks á síðustu misserum með stórhertri löggjöf um þungunarrof og sérstökum „hinseginlausum svæðum.“ Sambærileg þróun hefur átt sér stað annars staðar í Evrópu, enda er aðför að réttindum í einu landi árás á réttindi alls staðar.

Afturhaldsöflin eru víða og árásir þeirra eru skipulagðar. Nú skal grafið undan Istanbúl-samningnum, fyrsta lagalega bindandi alþjóðasamningurinn sem tekur heildstætt á ofbeldi gegn konum. Þrjátíu og fjögur ríki hafa fullgilt samninginn, Ísland þeirra á meðal, og telja þau því að ofbeldi gegn stúlkum og konum sé óásættanlegt og renna þannig traustari stoðum undir mannréttindi alls fólks.

Samningurinn er framsækinn, mikilvægur og þyrnir í augum afturhaldsafla. Umræða gegn aðild að Istanbúl-samningnum hefur náð rótfestu í mörgum löndum, en lengst hefur hún gengið í Póllandi og Tyrklandi. Stjórnvöld þar hafa síðustu misseri stefnt að því að rifta samningnum og þann 20. mars sl. tilkynntu tyrknesk stjórnvöld Evrópuráðinu að þau segðu sig frá Istanbúl-samningnum. Frumvarp sem miðar að sama marki gekk til nefnda pólska þingsins 30. mars.

Sendum skýr skilaboð

Þessi skipulagða aðför gefur tilefni til að hafa áhyggjur af afdrifum samningsins. Ákvörðun Pólverja og Tyrkja setur hættulegt fordæmi fyrir önnur ríki þar sem mannréttindi og lýðræði standa höllum fæti. Kvenréttindasamtök um alla Evrópu hafa enda lýst áhyggjum af þessari þróun og hvatt ríkisstjórnir til að berjast gegn þessu bakslagi í baráttunni fyrir réttindum kvenna. Þeirra á meðal er Kvenréttindafélag Íslands sem sendi áskorun þess efnis til forsætis- og utanríkisráðherra þann 30. mars.

Hér er tækifæri fyrir Ísland að tala skýrt. Fyrir Alþingi liggur nú tillaga um að fela ríkisstjórninni að grípa til aðgerða sem styðja við Istanbúl-samninginn. Sýna að Íslendingum er ekki sama um framgang afturhaldsaflanna sem grafa leynt og ljóst undan réttindum meðborgara okkar. Með tillögunni er lagt til að íslensk stjórnvöld taki skýra afstöðu með Istanbúl-samningnum, sýni pólitíska forystu í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og stuðning við kvenréttindi á alþjóðavísu. Aðför á einum stað er enda árás alls staðar.

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...