Baráttan um ókyngreind salerni og innleiðingu laga um kynrænt sjálfræði skilar árangri

Barátta mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur gegn úreldum reglugerðum hefur staðið yfir síðan 2018 við upphaf núverandi kjörtímabils. Fyrsta samþykkt ráðsins á kjörtímabilinu var að gera salerni í stjórnsýsluhúsnæði ókyngreind með því markmiði að gera Reykjavík að hinseginvænni vinnustað sem og bæta aðgengi trans fólks og kynsegin fólks. Við vorum síðar gerð afturreka með þessa ákvörðun. Hvers vegna? Vegna reglugerðar um húsnæði vinnustaða frá 1995.

Þetta snertir á enn fleiri viðfangsefnum eins og klefaaðstæðum en mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð hefur einnig unnið að bættu aðgengi trans og hinsegin fólks að sundlaugum, skóla- og íþróttahúsnæði. Við höfum látið útbúa ókyngreinda klefa í öllum sundlaugum og unnið að því að hugað sé að aðgengi trans og kynsegin fólks við breytingar og nýja uppbyggingu á vegum borgarinnar. Þar sem að ókyngreindir klefar henta ekki öllum höfum við aukinheldur látið útbúa leiðbeiningar sem styðja starfsfólk sundlauga og íþróttamannvirkja í því að standa vörð um aðgengi trans fólks að kyngreindum klefum einnig.

Þessi úrelda reglugerð frá 1995 um húsnæði vinnustaða á vegum félagsmálaráðuneytisins gengur í berhögg við lög um kynrænt sjálfræði sem tóku gildi árið 2019 og hið sama á við um reglugerð um hollustuhætti á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er varðar almenningssalerni og klefa. Þessum tveimur reglugerðum hefur ráðið því beitt sér fyrir því að verði breytt svo þær taki mið af þróun samfélagsins og nýjum normum þar sem gert er ráð fyrir fleiri kynjum en hefðbundin kynjatvíhyggja. Svo að þessi nýju og metnaðarfullu lög séu eitthvað meira en fögur orð á blaði heldur bæti líf trans og hinsegin fólks með beinum hætti. Við vitum að kyn eru ekki bara kyn­færi. Það er kyn­vitundin sem ræður kyni fólks og lög um kyn­rænt sjálf­ræði stað­festa það. Þau gera þér kleift að skil­greina sjálft þitt kyn og veita þér þau réttindi sem fylgja því kyni. Þetta er óháð leið­réttingarferli við­komandi enda ekki öll sem velja að fara í gegnum slíkt ferli.

Baráttan virðist loksins vera að skila árangri. Eftir bréfaskriftir, ítrekuð áköll, fjölda áskorana frá mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði í samráði við og með stuðningi frá hagsmunasamtökunum, innan úr hópi þingmannaliðsins og stúdentahreyfingunni, höfum við loks fengið þau svör að félagsmálaráðuneytið ætli að bæta úr þessu og ráðast í heildarendurskoðun á reglugerð um húsnæði vinnustaða frá 1995 í takt við lög um kynrænt sjálfræði í samráði við ráðið og hagsmunaaðila. Nýlega voru auk þess sett fram drög að nýrri reglugerð um hollustuhætti sem ráðið skilaði umsögn um.

Um leið og ég fagna þessum vendingum legg ég ríka áherslu á að verkefnin klárist og að nauðsynleg skref verði stigin að fullu til að vilji löggjafans með lögum um kynrænt sjálfræði nái fram að ganga. Það er okkar ósk að ókyngreind salerni verði viðmiðið.

Þó salerni og klefar og aðgengi að þeim hljómi mjög hversdagslega þá eru þetta aðstæður, mögulegt öráreiti og jafnvel ofbeldi sem fólk mætir á hverjum degi og getur haft umfangsmikil áhrif á lífsgæði trans og hinsegin fólks.

Reykjavík hefur einsett sér að vera í fararbroddi þegar kemur að vernd og eflingu mannréttinda. Við vinnum á vettvangi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs að hinseginvænna samfélagi með víðtækum hætti. Fyrir utan fyrrgreind mál er um að ræða Regnbogavottun starfsstaða Reykjavíkur sem hófst á kjörtímabilinu, vinnu við aukna kynja- og hinseginfræðslu í skólum, styrkingu hinsegin félagsmiðstöðvarinnar í tveimur hollum með stóru skrefi nú um áramótin og stuðningsvinnu með tékklistum og fræðslu vegna trans barna í skólakerfinu. Og áfram mætti telja.

Við höfum ekki ákveðið að há þessa baráttu um uppfærslu úreldra reglugerða í samræmi við lög um kynrænt sjálfræði einungis svo að Reykjavík verði hinseginvænni og geti staðið betur með trans og hinsegin íbúum og starfsfólki, heldur svo að öllum starfsstöðum og rekstraraðilum verði gert það kleift. Jafn­réttis- og mann­réttinda­bar­átta snýst ein­mitt um að skapa rými til að vera alls­konar, með alls­konar líkama. Þannig sköpum við betra samfélag fyrir öll.

Höfundur er oddviti Pírata í borgarstjórn og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur.

Upprunaleg birtingvisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Rasismi á Íslandi

Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin....

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...