Að hika er sama og tapa

Ríkisstjórninni leiðist ekki að endurtaka í ræðu og riti að nýsköpun sé rauði þráðurinn í nú þriggja ára gömlum stjórnarsáttmála sínum.

Í ljósi þeirrar staðreyndar að kvikmyndagerð er í eðli sínu nýsköpun hefur hún þrátt fyrir það verið alveg merkilega svifasein hvað það varðar að sýna alvöru framtak í verki gagnvart þeirri nýsköpunargrein.

Í maí síðastliðnum lögðu íslenskir kvikmyndaframleiðendur það til við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að endurgreiðsla vegna kvikmyndagerðar hækki tímabundið úr 25 prósentum í 35 prósent vegna COVID-19. Því var hafnað á þeim forsendum að Ísland væri samkeppnishæft í kvikmyndagerðarbransanum. En það var og er rangt mat.

Slík hækkun á endurgreiðslum hefði bæði flýtt fyrir sem og stóraukið líkurnar á því að erlendir framleiðendur hefði komið með verkefni til Íslands á síðasta hálfa árinu. En ríkisstjórnin tafði leikinn.

Í síðustu viku bárust fréttir af miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. Haft var eftir Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra að stór tækifæri fælust í því að styðja enn frekar við kvikmyndagerð í landinu og hækka endurgreiðslur af framleiðslukostnaði í 35% úr 25%. Ráðherra vísaði þar í kvik­mynda­stefnu sem Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, lagði nýverið fram. Í henni er miðað að því að gera kvik­mynda­fram­leiðslu að fjórðu stoð ís­lensks efna­hags­lífs.

Samt hefur endurgreiðslan enn ekki verið hækkuð eins og sár þörf er á. Það er gríðarhörð samkeppni í kvikmyndabransanum á alþjóðlegavettvangi og oft má aðeins litlu muna þegar að keppst er um verkefni hvert þau svo fara. Reyndir aðilar úr kvikmyndagerð hér á landi hafa fullyrt að umrædd hækkun á endurgreiðslu myndi miklu breyta og stórauka líkurnar á að Ísland landaði kvikmyndaverkefnum.

Nú hefur ferðaþjónustan sem var áður en COVID skall á, stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar nánast þurrkast út vegna heimsfaraldursins. En erlendum kvikmyndagerðarverkefnum fylgja oft stórir hópir fólks sem dvelja hérlendis í einhvern tíma. Þetta fólk nýtir sér hótelgistingu, bílaleigur, veitingastaði og ýmiskonar innlenda þjónustu og afþreyingu. Því má sjá að erlend kvikmyndaverkefni hefðu verið búbót fyrir ferðaþjónustuna á þessum erfiðu tímum.

Fjölmörg störf hefðu getað skapast við aukin umsvif kvikmyndagerðar og það nánast yfir nótt. Að kvikmyndaframleiðslu koma einstaklingar úr öllum mögulegum atvinnugreinum. Kreditlistinn í lok kvikmyndar eða þáttar segir allt sem segja þarf í þeim efnum.

Það hefur lengi verið borðleggjandi að styðja ætti á ríkulegan hátt við greinina strax í gær. En það hefur ekki verið gert.

Í staðinn er ríkisstjórnin enn grjót í eigin götu COVID-viðspyrnu og atvinnuuppbyggingar. Hálft ár er nú farið í súginn og vert að benda á að nú á COVID tímum leitast framleiðendur enn frekar eftir því að kvikmynda sem mest á einum stað. Því má ætla að Ísland hefði getað fengið stór verkefni í heilu lagi hefði hikið í ráðamönnum ekki tafið fyrir.

Íslensk kvikmyndagerð er líka gríðarlega öflug leið til að markaðssetja landið á jákvæðan hátt, án þess að leggja þurfi í beinan kostnað. Íslensk náttúra er einstök á heimsmælikvarða og óspillt náttúra hennar verður einstakari með hverju árinu vegna loftslagbreytinga. Tæp­lega 40% þeirra ferðamanna sem til Íslands koma segjast hafa fengið innblásturinn til þess með því að horfa á myndefni kvikmyndað á Íslandi.

Ísland hefur farið á mis við mörg stór verkefni undanfarið vegna sinnuleysis og aðgerðarleysis stjórnvalda sem ekki farið í þær einföldu og augljósu aðgerðir sem þarf til að Ísland verði samkeppnishæft. Landið er að verða undir í alþjóðlegri samkeppni og enn hafa stjórnvöld ekki gefið það upp hvenær þau hyggjast hækka endurgreiðslur eins og verður að gera!

Netflix myndin Eurovision fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina í haust. Vegna veikrar samkeppnishæfni Íslands voru margar útisenurnar teknar upp í Skotlandi, jafnvel senur sem í söguþræðinum gerðust á Íslandi.

Nýjasta og jafnframt blógusta dæmið um svipaðan svekkjandi missi er myndin Northman. Sögusvið myndarinnar er Ísland á 10. öld og fjallar um hefndir. Stærstur hluti sögunnar gerist á Íslandi en þrátt fyrir það verður myndin tekin upp á Írlandi, vegna þess að Írland bauð betur hvað varðar endurgreiðslur.

Endurgreiðsla vegna kvikmyndaverkefna hérlendis er nú 25 prósent en Írland býður upp á 32 til 37 prósenta endurgreiðslu. Innbyggt í endurgreiðslukerfi Írlands er einnig hvati til þess að dreifa tökunum jafnara yfir landið. Endurgreiðslan er hærri ef tekið er upp á tilteknum svæðum landsins sem þurfa meira á umsvifunum að halda.

Langtímahugsun og markviss uppbygging í fótboltaíþróttinni hérlendis hefur heldur betur skilað sér fyrir þjóðina síðustu misseri, og er nú vel lagt í greinina með uppbyggingu nýs þjóðarleikvangs.

Kvikmyndagerðariðnaðurinn á skilið sömu athygli og umhyggju enda hefur hann margsannað gildi sitt, mikilvægi og fagmennsku á heimsmælikvarða. Viðlíka framkvæmdir þarf nauðsynlega að ráðast í á næstunni. Byggja þarf til að mynda fleiri almennileg kvikmyndaver hér á landi um leið og færi gefst.

Kvikmyndagerð er verðmætaskapandi inn- og útflutningsgrein byggð á nýsköpun. Í sama ranni og út frá sömu rökum þarf nauðsynlega að hækka endurgreiðslur til tónlistargeirans. Iðjusemi Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar tónlistarmanns, sem í COVID hefur komið upp upptökuveri á Akureyri fyrir erlenda kvikmyndatónlist er til algjörar fyrirmyndar. Eins er þess skemmst að minnast þegar að Hildur Guðnadóttir tónskáld sópaði til sín öllum virtustu verðlaunum kvikmyndageirans fyrir kvikmyndatónlistina sem hún samdi fyrir stórmyndina Joker í upphafi árs.

Ákvarðanafælni ríkisstjórnarinnar hefur verið áberandi frá upphafi kjörtímabilsins, en nú er hún orðin óforsvaranlega blóðug og kosnaðarsöm.

Eins og segir í gamalli íslenskri vísu eftir Steingrím Thorsteinsson:

T ækifæ rið gríptu greitt,

giftu mun það skapa..

Járnið skaltu hamra heitt,

að hika er sama og tapa.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...

Fiskisaga