Bein útsending verður frá öllum framboðskynningum í prófkjöri Pírata til Alþingiskosninga 2021. Hægt verður að horfa á streymið á heimasíðu Pírata og í gegnum streymiskerfi flokksins Píratar.TV, einnig verður hægt að horfa á streymið á Facebook síðum kjördæmafélaganna. Kynningarnar standa yfir dagana 1-5. mars næstkomandi og þar fá frambjóðendur tækifæri til þess að kynna sig og sínar áherslur fyrir öðru félagsfólki. Streymið hefst klukkan 19.00 alla daga.
Við brýnum fyrir frambjóðendum að kynna sér prófkjörsreglur viðeigandi kjördæmafélags.
Dagskrá
Mánudagur | 1. mars | kl:19-21.00 | Suðurkjördæmi |
Þriðjudagur | 2. mars | kl:19-21.00 | Suðvesturkjördæmi |
Miðvikudagur | 3. mars | kl:19-21.00 | Norðausturkjördæmi |
Fimmtudagur | 4. mars | kl:19-21.00 | Norðvesturkjördæmi |
Föstudagur | 5. mars | kl:19-21.00 | Reykjavíkurkjördæmin |