Píratar gefa Alþingi tækifæri á að standa með Palestínu

Þingflokkur Píratar hefur lagt fram áskorun til Alþingis um að fordæma framgöngu Ísraelsmanna

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að Alþingi fordæmi ofbeldisaðgerðir Ísraelshers gegn palestínsku þjóðinni. Verði hún samþykkt mun Alþingi jafnframt skora á stjórnvöld í Ísrael að hætta þegar í stað hvers konar beitingu hervalds í samskiptum við Palestínu og að flytja herlið sitt og landtökufólk brott af hernumdum svæðum Palestínu. Samhliða þessu myndi Alþingi hvetja ríki heims til að taka undir þessa fordæmingu, að standa með mannréttindum og að beita sér fyrir frjálsri Palestínu.

Þingsályktunartillagan er lögð fram vegna aukinnar hörku í árásum ísraelskra stjórnvalda gegn palestínskum borgurum. Nýjasta hrina loftárása Ísraels-ríkis, sem hefur nú staðið yfir í um viku, hefur kostað um 200 palestínska borgara lífið, þar af er helmingurinn konur og börn. Árásirnar eru fylgifiskur aukinnar spennu á landtökusvæðum vegna brottflutnings palestínskra íbúa þaðan.

Mannréttindavaktin (e. Human Rights Watch) gaf þann 27. apríl sl. út skýrslu þar sem framgöngu Ísraels gagnvart íbúum Palestínu var lýst sem ofsóknum og aðskilnaðarstefnu (e. apartheid). Árásir á almenna palestínska borgara fela í sér ólögmætar aðgerðir eins þjóðríkis gagnvart almennum borgurum annars. Þær fela í sér víðtæk mannréttindabrot og stríða gegn öllum þeim almennu mannréttindasamningum sem stjórnvöldum nútímans ber að starfa eftir. 

Þingflokkur Pírata gefur Alþingi, sem viðurkenndi sjálfstæði Palestínu fyrst vestrænna þjóða árið 2011, með þessu færi á því að fordæma aðgerðir ísraelsks herliðs gegn palestínsku þjóðinni. Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu þess efnis, þar sem segir m.a: 

Þingflokkur Pírata gefur Alþingi, sem viðurkenndi sjálfstæði Palestínu fyrst vestrænna þjóða árið 2011, með þessu færi á því að fordæma aðgerðir ísraelsks herliðs gegn palestínsku þjóðinni. Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu þess efnis, þar sem segir m.a: 

„Alþingi ályktar að fordæma harðlega ofbeldisaðgerðir ísraelsks herliðs gegn palestínsku þjóðinni sem og landtökustefnu Ísraelsstjórnar. Alþingi skorar á stjórnvöld í Ísrael að hætta þegar í stað hvers konar beitingu hervalds í samskiptum við Palestínu og að flytja herlið sitt og landtökufólk brott af hernumdum svæðum Palestínu. Alþingi skorar á ríki heims að taka undir þessa fordæmingu, að standa með mannréttindum og að beita sér fyrir frjálsri Palestínu.“

Auk Halldóru setja eftirfarandi þingmenn nafn sitt við þingsályktunina: Andrés Ingi Jónsson, Ari Trausti Guðmundsson, Björn Leví Gunnarsson, Guðmundur Andri Thorsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Steindór Valdimarsson, Jón Þór Ólafsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Olga Margrét Cilia, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Fyrstu ár barnsins: fæðingarorlof, leikskóli og bilið þar á milli

Ljóst er að samfélagsgerð okkar gerir ekki nægilega vel ráð fyrir fyrstu fimm árunum...

Nýárskveðja

Kæru Píratar, Þá er árið 2022 á enda. Tíunda afmælisár Pírata. Píratar sem byrjuðu sem...

Hið fjöruga og fjölbreytta 2022

Nú er þetta langa og skrýtna ár senn á enda og tímabært að líta...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra....