Listi Pírata í Kópavogi

Píratar í Kópavogi bjóða fram öflugan framboðslista til sveitarstjórnarkosninga sem fara fram þann 14. maí nk.

Oddviti listans er Sigurbjörg Erla Egilsdóttir en hún hefur setið í bæjarstjórn fyrir Pírata í Kópavogi undanfarin fjögur ár. Annað sæti skipar Indriði Ingi Stefánsson, hann hefur starfað í nefndum bæjarins á liðnu tímabili og er varaþingmaður fyrir suðvesturkjördæmi. Þriðja sæti skipar Eva Sjöfn Helgadóttir sálfræðingur en hún er einnig varaþingkona fyrir suðvesturkjördæmi.

Píratar í Kópavogi munu meðal annars leggja áherslu á valdeflingu bæjarbúa, umhverfis- og loftslagsmál, bættar samgöngur auk húsnæðismála. Félagið hefur lagt mikinn metnað í gerð stefnumála undanfarna mánuði og munu þau vera kynnt í heild sinni á næstu vikum.

Hér má sjá listann í heild sinni:

1.   Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Sálfræðingur
2.   Indriði Ingi Stefánsson, Tölvunarfræðingur
3.   Eva Sjöfn Helgadóttir, Sálfræðingur
4.   Matthias Hjartarson, Verkfræðingur
5.   Margrét Ásta Arnarsdóttir, Stuðningsfulltrúi
6.   Árni Pétur Árnason, Nemi
7.   Kjartan Sveinn Guðmundsson, Nemi
8.   Elín Kona Eddudóttir, Mastersnemi
9.   Salóme Mist Kristjánsdóttir, Öryrki
10.  Sigurður Karl Pétursson, Nemi
11.  Sophie Marie Schoonjans, Tónlistarkennari
12.  Þröstur Jónasson, Gagnasmali
13.  Anna C. Worthington de Matos, Framkvæmdastýra
14.  Ögmundur Þorgrímsson, Rafvirki
15.  Ásmundur Alma Guðjónsson, Forritari
16.  Halldór Rúnar Hafliðason, Tæknistjóri
17.  Sara Rós Þórðardóttir, Sölufulltrúi
18.  Hákon Jóhannensson, Matvælafræðingur
19.  Arnþór Stefánsson, Kokkur
20.  Ásta Marteinsdóttir, Eftirlaunaþegi
21.  Egill H. Bjarnason, Vélfræðingur
22.  Vigdís Ásgeirsdóttir, Sálfræðingur

Fyrstu ár barnsins: fæðingarorlof, leikskóli og bilið þar á milli

Ljóst er að samfélagsgerð okkar gerir ekki nægilega vel ráð fyrir fyrstu fimm árunum...

Nýárskveðja

Kæru Píratar, Þá er árið 2022 á enda. Tíunda afmælisár Pírata. Píratar sem byrjuðu sem...

Hið fjöruga og fjölbreytta 2022

Nú er þetta langa og skrýtna ár senn á enda og tímabært að líta...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra....