Píratar leggja áherslu á lýðræði í víðum skilningi í komandi kosningabaráttu. Flokkurinn hefur frá upphafi lagt áherslu á eflingu lýðræðis á Íslandi og að koma hreint til dyranna. Fyrir vikið er yfirskrift kosningastefnu Pírata í anda flokksins: Lýðræði – ekkert kjaftæði.
Á kynningarfundi í dag útskýrði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, að lýðræði sé ekki bara kosningar, prófkjör og þjóðaratkvæðagreiðslur. Lýðræði sé líka nálgun á stjórnmál. „Áhersla á fólk – hugmyndir þess, velferð og valdeflingu – og það er algjört grundvallaratriði ef við ætlum að takast á við margar af stærstu áskorunum samtímans,“ sagði Þórhildur Sunna og vísaði þar t.a.m. til loftslagsbreytinga, sjálfvirknivæðingar og fjórðu iðnbyltingarinnar.
„Þetta eru áskoranir samtímans – ekki framtíðar. Við erum komin á þann tímapunkt í sögunni að það þýðir ekki fyrir stjórnmálamenn að tala um framtíðin hitt, framtíðin þetta eða að hún ráðist á miðjunni. Loftslagsbreytingar eru farnar að hafa mikil áhrif. Sjálfvirknivæðingin er hafin. Ef ekki á illa fara þá þurfum við aðgerðir, núna.“
Leiðin að velsældarsamfélaginu
Píratar samþykktu kosningastefnu í 24 köflum í sumar, þar sem lýðræðið og valdefling fólks er sem rauður þráður í gegnum alla stefnuna. Stefnan miðar að því að skapa á Íslandi sjálfbært velsældarsamfélag sem hvílir á nýrri stjórnarskrá, hagkerfi framtíðarinnar, sanngjörnum leikreglum og virðingu við náttúru og fólk. Samfélag þar sem fólk hefur raunverulega getu til að taka þátt í lýðræðinu og rödd þess skiptir einhverju máli.
Þetta samfélag hvílir á fimm stoðum, sem Píratar kynntu í dag:
- Efnahagskerfi 21. aldarinnar
- Ný mælitæki í stað þess að einblína á hagvöxt
- Mengandi og auðugir bera byrðarnar
- Öll opinber útgjöld endurskoðuð
- Hærri persónuafsláttur og dregið úr skerðingum
- Umhverfis- og loftslagshugsun
- Kolefnishlutleysi árið 2035
- Ábyrgðin færð á stjórnvöld og mengandi stórfyrirtæki
- Jákvæðir hvatar til að flýta grænvæðingunni
- Orku forgangsraðað í þágu smærri notenda
- Nýja stjórnarskráin, auðvitað
- Ný stjórnarskrá á grundvelli vinnu stjórnlagaráðs
- Þjóðaratkvæðagreiðsla samhliða þarnæstu kosningum
- Forsendan fyrir ríkisstjórnarsamstarfi
- Virkar varnir gegn spillingu
- Efling eftirlitsstofnana og lagaumhverfis
- Endurskoðun á starfsumhverfi fjölmiðla
- Aukin vernd fyrir uppljóstrara
- Rannsóknir á fjárfestingaleið Seðlabankans og spillingu í sjávarútvegi
- Róttækar breytingar í sjávarútvegi
- Eign þjóðarinnar á auðlindinni staðfest í stjórnarskrá
- Uppboð á aflaheimildum og frjálsar handfæraveiðar
- Allur afli í gegnum innlendan markað og verðlagsstofa skiptaverðs lögð niður
- Refsivert að láta sjómenn taka þátt í kaupum eða leigu útgerða á aflaheimildum.
Nýsköpun á öllum sviðum
„Allar stefnur Pírata miða að sjálfbæru velsældarsamfélagi þar sem grunnþörfum allra er mætt,“ sagði Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, á kynningarfundinum í dag. „Grundvöllur velsældar í framtíðinni verður öflugt nýsköpunarumhverfi þar sem Píratar leggja fram aðgerðaráætlun í 20 liðum. Öruggt húsnæði, öflugt menntakerfi, hágæða heilbrigðiskerfi og lýðræði – ekkert kjaftæði – eru máttarstólpar hins sjálfbæra framtíðarsamfélags sem við Píratar ætlum að skapa.“
Björn Leví tiltók jafnframt nokkur atriði sem finna má í viðamikilli framtíðarsýn Pírata:
- Nýtt og framsækið menntakerfi sem byggir á námsstyrkjum.
- Uppstokkun og uppbygging á húsnæðismarkaði og sterkari staða leigjenda
- Nýr tónn í útlendingamálum og Útlendingastofnun lögð niður
- Dregið úr skerðingum í stuðningskerfunum þangað til þær hverfa endanlega
- Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónustu og þvingunarlaus og valdeflandi geðheilbrigðisþjónustu.
- Hætt að refsa vímuefnanotendum og skaðaminnkandi aðferðir í stað bannstefnu.
- Nýsköpunarlandið Ísland sem getur tekist á við loftslagsbreytingar, sjálfvirknivæðingu og fjórðu iðnbyltinguna.
Sem fyrr segir er kosningastefna Pírata í 24 köflum og því er þetta ekki tæmandi yfirferð. Kosningastefnu Pírata í heild sinni má nálgast á sérstökum kosningavef flokksins. Upptöku af kynningarfundi Pírata má jafnframt nálgast á piratar.tv.