Framlengdur framboðsfrestur í prófkjöri Pírata í Reykjanesbæ
Ábyrgðaraðilar prófkjöra Pírata í Reykjanesbæ hafa ákveðið að fresta fyrirhuguðu prófkjöri flokksins og mun það fara fram dagana 19. – 26. mars næstkomandi.
Framboðsfrestur mun því framlengjast til mánudagsins 14. mars og óskar stjórn Pírata í Reykjanesbæ eftir því að öflugir og áhugsamir frambjóðendur setji sig í samband við ábyrgðaraðila prófkjörs, Margréti Sigrúni Þórólfsdóttur (margthor@piratar.is), fyrir nánari upplýsingar.