Félagsfundur um braggamálð

Grasrót Pírata hefur boðað borgarstjórnarflokk Pírata á félagsfund vegna framúrkeyslu í Braggamálinu. Fundurinn verður haldinn í félagshúsnæði Pírata, Síðumúla 23 (gengið inn Selmúlamegin) í Reykjavík þann 13. október klukkan 13:00 til 15:00.

Lög Pírata heimila grasrót flokksins að fara fram á fund með kjörnum fulltrúum. Borgarstjórnarfulltrúar flokksins verða á fundinum að ósk grasrótar. Dagskrárefni fundarins er framúrkeyrsla hjá Reykjavíkurborg við endurbætur á gömlum bragga, náðhúsi og skála við Nauthólsveg 100. Upphafleg kostnaðaráætlun vegna verksins hljóðaði upp á 158 milljónir en framkvæmt hefur verið fyrir 415 milljónir og verkinu ekki lokið. Mikilvægt er að komast til botns í þessu máli.

Píratar eru aðhaldsafl gegn spillingu bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Fundurinn er liður í vilja flokksins til að standa undir því loforði sem flokkurinn gaf í kosningum.

Félagsfundir Pírata eru öllum opnir. Lög flokksins gera ráð fyrir virku aðhaldi og þátttöku grasrótar. Borgarfulltrúar hafa þegar boðað komu sína á fundinn.

Við vekjum ennfremur athygli á grein Halldórs Auðar Svanssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa Pírata, sem hann skrifaði á dögunum á Stundina og ber heitið Óháð

Fyrstu ár barnsins: fæðingarorlof, leikskóli og bilið þar á milli

Ljóst er að samfélagsgerð okkar gerir ekki nægilega vel ráð fyrir fyrstu fimm árunum...

Nýárskveðja

Kæru Píratar, Þá er árið 2022 á enda. Tíunda afmælisár Pírata. Píratar sem byrjuðu sem...

Hið fjöruga og fjölbreytta 2022

Nú er þetta langa og skrýtna ár senn á enda og tímabært að líta...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra....