
Framkvæmdaráð Pírata auglýsir eftir tilnefningum um fulltrúa í trúnaðarráð Pírata.
Hlutverk ráðsins, samkvæmt lögunum, er að bjóða sáttamiðlun og aðstoð þegar upp kemur ágreiningur eða annar vandi í samskiptum og starfi félagsmanna. Til ráðsins geta aðildarfélög, framkvæmdaráð eða félagsmenn leitað til að fá aðstoð. Ráðið getur líka haft frumkvæði að sáttamiðlun ef það telur þörf á því.
Hægt er að leita til trúnaðarráðs með því að senda tölvupóst á trunadarrad@piratar.is
Allir félagsmenn í Pírötum eru hvattir til að tilnefna í trúnaðarráð einstaklinga sem þeir treysta til að sinna verkefninu með sóma, en gott er að láta upplýsingar fylgja með tilnefningunni ef viðkomandi hefur tengda starfsreynslu, menntun eða sérþekkingu. Framkvæmdaráð Pírata skipar þrjá fulltrúa úr innsendum tilnefningum sem þarf svo að staðfesta á löglegum félagsfundi.
Frestur til að skila tilnefningum er til kl 18:00 fimmtudaginn 24. janúar 2019 og stefnir framkvæmdaráð á að leggja tillögu að nýju trúnaðarráði fyrir félagsfund sem haldinn verður skömmu síðar og verður auglýstur sérstaklega.
Við val á fulltrúum í trúnaðarráð er metin sérstaklega hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðum vinnubrögðum og almennt traust meðal flokksmanna. Æskilegt er að þeir hafi áður gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Fulltrúar í trúnaðarráði skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á meðan þeir sitja í trúnaðarráði.
Tilnefningar sendist á: framkvaemdarad@piratar.is merkt Trúnaðaráð
Um trúnaðarráð Pírata https://piratar.is/um-pirata/log-og-reglur/trunadarrad/
Um trúnaðarráð úr lögum Pírata https://piratar.is/um-pirata/log-og-reglur/#8a