Auglýst eftir framboðum í ráð og nefndir

Kæru Píratar!

Leitin að framtakssömum og framkvæmdaglöðum Pírötum til þess að taka sæti í ráðum og nefndum flokksins er hafin! Við auglýsum eftir fólki sem vill taka sæti í framkvæmdaráði, úrskurðarnefnd eða gerast skoðunarmenn reikninga. Sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

>> Smelltu hér til að skrá þig á aðalfund Pírata 2018 <<

FRAMKVÆMDARÁÐ

Framkvæmdaráð Pírata fer með almenna stjórn og rekstur félagsins og meðal helstu verkefna ráðsins má nefna:

  • Utanumhald yfir fjármuni flokksins,
  • Húsnæðismál og rekstur félagsheimilis Pírata,
  • Starfsmannamál,
  • Viðburðarstjórnun og skipulagning aðalfundar,
  • Yfirumsjón félagatals, kosningakerfis, tölvupósta og vefsíðu Pírata,
  • Samskipti og móttaka fyrirspurna frá aðildarfélögum og félagsmönnum sem og  innlendum og erlendum aðilum er hafa samband við Pírata,
  • Samræming kosningabaráttu á landsvísu í samráði við aðildarfélög Pírata.

Framkvæmdaráð sinnir auk þess ýmis öðrum verkefnum er snúa að innra starfi flokksins. Lög félagsins gera ráð fyrir að framkvæmdaráð fundi að minnsta kosti einu sinni í mánuði en undanfarin þrjú ár hefur framkvæmdaráð fundað vikulega. Vinnuálag ráðsins stjórnast mikið af ytri aðstæðum en gera má ráð fyrir að hver meðlimur framkvæmdaráðs vinni fyrir ráðið að því sem nemur um 2- 15+ klukkutímum á viku. Ráðið hefur ekki stefnumótunarvald þó einstaklingum innan þess sé áfram frjálst að taka þátt í stefnumótun flokksins sem almennir félagsmenn.

Meðlimir framkvæmdaráðs verða kjörnir á aðalfundi Pírata sem haldinn verður 29. september 2018. Samkvæmt nýlegum lögum sitja tíu í framkvæmdaráði. Ráðið samanstendur af átta aðalmönnum sem valdir eru með forgangskosningu en auk þess eru tveir meðlimir framkvæmdaráðs valdir með slembivali og koma gestir aðalfundar til greina í því vali.

Sex nýir meðlimir verða kosnir inn í framkvæmdaráð í ár, fjórir í forgangskosningu á x.piratar.is og tveir slembivaldir aðalfundargestir.

Félagsmenn sem hafa verið skráðir í félagið í 30 daga eða lengur, aðrir en kjörnir fulltrúar, geta átt sæti í framkvæmdaráði. Þó skal enginn sitja í framkvæmdaráði lengur en tvö kjörtímabil samfleytt.

Hafir þú áhuga á að sinna þessu mikilvæga starfi fyrir flokkinn þá er framboðsfrestur til setu í framkvæmdaráði Pírata 2018-2019 til klukkan 23:59 að kvöldi 20. september. Til þess að bjóða sig fram þarf að senda tilkynningu um framboð ásamt hagsmunaskráningu á framkvæmdastjóra Pírata á póstfangið framkvaemdastjori@piratar.is áður en framboðsfrestur rennur út.

Í hagsmunaskráningu ber frambjóðendum að gera grein fyrir þeim trúnaðarstörfum sem frambjóðandi gegnir utan og innan flokksins ásamt öðrum högum sínum sem valdið gætu hagsmunaárekstri í starfinu. Hagsmunaskráningar verða birtar á vefsíðu félagsins sbr. grein 4.15. í lögum Pírata.

Að loknum framboðsfresti fá frambjóðendur upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig staðið verður að kynningu á frambjóðendum. Áhugasamir sem vilja forvitnast frekar um hvað felst í setu í framkvæmdaráði geta haft samband við formann framkvæmdaráðs, Sindra Viborg á póstfangið sindri@piratar.is

ÚRSKURÐARNEFND

Hlutverk Úrskurðanefndar í lögum Pírata er að úrskurða um ágreining um framkvæmd, túlkun og brot á lögum Pírata (gr. 8.1) í samræmi við lög félagsins og landslög (gr. 8.4). Úrskurðir nefndarinnar eru bindandi.

Nefndin er skipuð þremur félagsmönnum og skulu þeir kosnir á aðalfundi ár hvert auk tveggja varamanna. Fulltrúar í úrskurðarnefnd skulu ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á meðan þeir sitja í úrskurðarnefnd.

Framboðsfrestur til setu í Úrskurðarnefnd fyrir Pírata starfsárið 2018-2019 er til klukkan 23:59 að kvöldi 27. september.

SKOÐUNARMENN REIKNINGA

Lög Pírata (gr. 4.11) gera ráð fyrir að tveir skoðunarmenn reikninga skuli kjörnir með STV forgangskosningu á aðalfundi.

Framboðsfrestur í stöður Skoðunarmanna reikninga fyrir Pírata starfsárið 2018-2019 er til klukkan 23:59 að kvöldi 27. september.

Tilkynningar um framboð skal senda á póstfangið framkvaemdastjori@piratar.is  áður en framboðsfrestur rennur út. Að loknum framboðsfresti fá frambjóðendur nánari upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig staðið verður að kynningu frambjóðenda.

Píratar af öllum gerðum og stærðum eru hvattir til þess að bjóða sig fram í þessi fjölbreyttu og gefandi sjálfboðastörf.

Við hlökkum til að sjá ykkur á aðalfundinum 29. september á Hótel Selfossi. Sjá Dagskrá aðalfundar Pírata 2018.

Fyrstu ár barnsins: fæðingarorlof, leikskóli og bilið þar á milli

Ljóst er að samfélagsgerð okkar gerir ekki nægilega vel ráð fyrir fyrstu fimm árunum...

Nýárskveðja

Kæru Píratar, Þá er árið 2022 á enda. Tíunda afmælisár Pírata. Píratar sem byrjuðu sem...

Hið fjöruga og fjölbreytta 2022

Nú er þetta langa og skrýtna ár senn á enda og tímabært að líta...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra....