Framboðsfrestur til setu í framkvæmdaráð rann út á miðnætti í gær. Átján gild framboð bárust.* Listi með nöfnum frambjóðenda verður sendur á félagatal Pírata á morgun en frambjóðendum er frjálst að tilkynna opinberlega um framboð sitt þegar þeir kjósa.
(Meðfylgjandi mynd er tekin af nýkjörnu framkvæmdaráði eftir aðalfund í fyrra.)
Hér neðar er afrit af pósti sem allir frambjóðendur fengu sendan eftir að framboðsfrestur rann út: —
Hæ! Þú færð þennan póst þar sem þú hefur gefið kost á þér til setu í framkvæmdaráði Pírata. Nítján framboð bárust. Fjórir verða kjörnir samkvæmt forgangskosningu í kosningakerfi Pírata – x.piratar.is – laugardaginn 29. ágúst þegar aðalfundur félagsins stendur yfir.
Tveir fulltrúar til viðbótar verða slembivaldir í framkvæmdaráð á aðalfundinum og koma fundargestir þar til greina. Opnað verður fyrir kosningu kl 10.05 á laugardeginum, um leið og aðalfundur hefur verið settur. Kosningu lýkur klukkan 17.30. Listi með nöfnum frambjóðenda verður sendur á félagatalið eftir rúman sólarhring, að morgni laugardagsins 22. september. Við hvetjum frambjóðendur til að vera búnir að skrá sig á x.piratar.is og búa til prófíl með upplýsingum um framboð fyrir þann tíma. Það er þó engin skylda að hafa gert það því fyrir þann tíma. Þér er frjálst að upplýsa um þitt framboð þegar þú vilt.
Kynning á frambjóðendum fer fram með eftirfarandi hætti. A. Frambjóðendur skrifa kynningu og setja í prófílinn sinn í kosningakerfinu, x.piratar.is. Nýskráningar fara fram hér https://x.piratar.is/accounts/register/ Ágætt er að miða við hámark 300-500 orð í kynningu. Í kynningu getur til dæmis komið þar fram af hverju þú býður þig fram og hver er uppáhalds greinin þín í grunnstefnu Pírata og/eða Píratakóðanum. Hagsmunaskráning fer einnig inn á prófílinn. Sömuleiðis skal setja mynd af sér í prófílinn og þeir sem vilja geta sett inn kynningarmyndband. B. Fimmtudagskvöldið 27. september kl 19.00-21.00 verður opið hús í Tortuga, Síðumúla 23 í Reykjavík, þar sem frambjóðendur geta kynnt sig með óformlegum hætti. Þeir frambjóðendur sem ekki komast á fundinn geta tekið þátt í fjarfundi. Útprent af skriflegum kynningum úr prófílum verða þar aðgengileg ásamt mynd af frambjóðendum. C. Frambjóðendur eru hvattir til að nýta samfélagsmiðla til að kynna sig, til dæmis á Pírataspjallinu, Virkum Pírötum og Facebooksíðum aðildarfélaga. Við fögnum því að frambjóðendur kynni sig. D Aðalfundurinn fer fram á Hótel Selfossi og þar munu útprent af skriflegu kynningunum úr prófílnum vera aðgengileg ásamt myndum af frambjóðendum. Annars mun ekki vera sérstök kynning á einstökum frambjóðendum á aðalfundinum utan þess að nöfn þeirra verða lesin upp. Við hvetjum frambjóðendur til að taka virkan þátt sem sjálfboðaliðar á aðalfundi þar sem ýmis verkefni eru í boði. Mánudaginn 24. september kl. 18.00-20.00 verður fundur með sjálfboðaliðum í Tortuga, Síðumúla 23 í Reykjavík. Þar munu sjálfboðaliðar sem ætla að vinna á aðalfundinum hittast, fara yfir stöðuna og undirbúa sig. Farið verður yfir verkefnin sem þarf að sinna og hlutverk hvers og eins. Fjarfundabúnaður verður í boði fyrir þá sem komast ekki, til dæmis vegna búsetu, en við hvetjum eindregið alla sem eiga heimangengt að mæta. Vinsamlegast látið vita fyrirfram ef þið viljið taka þátt í gegn um fjarfundarbúnað. Sjá nánar hér https://piratar.is/frettir/sjalfbodalidar-oskast-fyrir-adalfund/ Samkvæmt lögum Pírata á fjarstaddur félagsmaður rétt á að vera í slembivali komi hann á framfæri „tilkynningu til framkvæmdaráðs eða aðalfundar skýrri og ótvíræðri yfirlýsingu um að vera í því og skal þá réttilega álitið að hann samþykki þær stöður sem hann hlýtur á grundvelli þess.“ Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu inn á x.piratar.is eða við gerð kynningarefnis geta leitað til skrifstofu Pírata, framkvaemdastjori@piratar.is s. 7723440 (Erla Hlynsdóttir) eða s. 8689888 (Hans Benjamínsson). * Nítján buðu sig upphaflega fram en í ljós kom að einn frambjóðenda hafði ekki verið skráður nógu lengi í Pírata til að vera gjaldgengur í framkvæmdaráð.
** Þann 26. september var eitt framboð dregið aftur og því sautján eftir í framboði.