Píratar í Reykjavík boða til aðalfundar laugardaginn 22. október 2022. Fundurinn verður í Bragganum í Nauthólsvík og hefst klukkan 17:00. Fundurinn er opinn öllum, jafnt Pírötum og öðrum sem vilja kynna sér starfið. Verið velkomin og meldið ykkur á Facebook viðburðinn okkar.
Dagskrá aðalfundar PíR
- Ársreikningur 2021
- Lagabreytingar
- Yfirferð á starfi stjórnar
- Pepp frá sveitastjórnarfulltrúum okkar í Reykjavík
- Lykilræða þingfólks okkar í Reykjavík
- Kosning í stjórn og kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
- Formlegri dagskrá lýkur og skemmtun hefst
Kosning til stjórnar
Núverandi stjórnarmeðlimir ætla ekki að bjóða sig fram aftur enda flest komin í önnur hlutverk fyrir flokkinn. Kosning til stjórnar Pírata í Reykjavík fer fram í rafrænu kosningakerfi Pírata og framboðsfrestur er til klukkan 18:00 þann 17. október. Kosning hefst strax að loknum framboðsfresti og lýkur kosningu á aðalfundinum þann 22. október klukkan 18:00 og verða úrslit kynnt á aðalfundinum.
Framboðskynningar í beinni á Píratar TV
Fimmtudaginn 20. október fer fram kynning frambjóðenda í stjórn Pírata í Reykjavík. Kynning frambjóðenda fer fram í beinu streymi á www.piratar.tv þar sem frambjóðendur kynna sig og svara spurningum áhorfenda. Útsending hefst klukkan 20:00.