Þarf fleiri miðaldra karlmenn á Alþingi?

Gísli Rafn Ólafsson skrifar um hvað fékk hann til að bjóða sig fram fyrir Pírata í Suðvesturkjördæmi.

Hvað fær miðaldra karlmann til þess að bjóða sig fram til Alþingis? Erum við ekki nú þegar nógu margir í efstu lögum samfélagsins?

Ástæðurnar fyrir framboðum miðaldra karla eru að líkindum mismunandi enda erum við blessunarlega fjölbreyttur hópur, þrátt fyrir fábreytt kynferði og aldursbil. Eftir að hafa starfað um áratuga skeið um allan heim, með fjölmörgu fjölbreyttu fólki við krefjandi aðstæður, langar þennan miðaldra karl einfaldlega að láta gott af sér leiða:

Uppbygging

Framundan er uppbygging eftir óvænt áfall. Í gegnum störf mín undanfarna áratugi hef ég stýrt viðbrögðum við mörgum af stærstu krísum heims; eins og eftir flóð, jarðskjálfta, fellibylji og Ebólu. Nú stöndum við frammi fyrir tveimur af stærstu krísum seinni tíma, heimsfaraldri og loftslagsvá. Frábært viðbragð sérfræðinganna við heimsfaraldrinum líður fyrir hið pólitíska viðbragð, sem hefur einkennst af því að slá öllu á frest. Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart, því að viðbragð stjórnmálamanna við loftslagsvá hefur einnig einkennst af því að slá öllum alvöru viðbrögðum á frest. Sem reyndur krísustjórnandi get ég fullyrt að það að stinga höfðinu í sandinn og vona að allt fari á besta veg hefur aldrei virkað. Ég vil ekki að börnin mín og barnabörn þurfi að líða fyrir aðgerðaleysi minnar kynslóðar.

Ungt fólk

Sem fimm barna faðir þá eru málefni ungs fólks mér ansi kær. Þau lifa á miklum breytingatímum, en samt eru þeir innviðir samfélagsins sem eiga að styðja ungt fólk hannaðir og stjórnað af kynslóðum sem bera ekki skilning á samfélagi nútímans. Handan við hornið er aukin sjálfvirkni- og hnattvæðing sem mun ekki aðeins hafa áhrif á gerð starfa heldur jafnframt staðsetningu þeirra. Ef við viljum ekki glutra niður mikilvægu tækifæri er nauðsynlegt að uppfæra mennta- og stuðningskerfin okkar, fyrr en síðar. Við þurfum að hætta að vera hrædd við framtíðina, grípa gæsina og búa okkur undir breytingarnar sem fram undan eru. Unga fólkið okkar á tækifærin skilið.

Eldra fólk

Við sem eigum foreldra og aðra ættingja sem komnir eru á eftirlaun þurfum að horfast í augu við hvernig farið er með fólkið sem ruddi brautina fyrir okkur. Við höfum jaðarsett eldri kynslóðir, ýmist í fátækt eða óhentugar stofnanir. Það þarf að snúa af þeirri braut, fá eldra fólk aftur að borðinu og koma fram við fullorðið fólk eins og fullorðið fólk. Samfélagið á að styðja það til að lifa lífi sínu eins og það sjálft vill, en sé ekki fast í boðum, bönnum og skerðingum. Hið opinbera á að efla fólk, hvort sem það vill setjast í helgan stein eða hefur ánægju og getu til að vera á vinnumarkaði á efri árum. Framtíð eldra fólks skal vera á þeirra forsendum og til þess þarf að fjölga valmöguleikum þeirra og fækka refsingum. Við sem erum miðaldra í dag munum þakka okkur síðar.

Útlendingar

Undanfarna áratugi hef ég unnið mikið með fólki á flótta og séð frá fyrstu hendi þær aðstæður sem það er að flýja. Hvort sem það hefur verið í Grikklandi, Kenía eða Haítí þá hefur lærdómurinn verið sá sami: Það leggur enginn á flótta af léttúð. Það er því eins og að fá hnífstungu í hjartað að horfa upp á þá ómannúðlegu meðferð sem hælisleitendur fá hér á landi. Í stað þess að styðja þau sem eru búin að flytja hingað á hjara veraldar í leit að betra lífi, þá virðumst við vera tilbúin að gleyma öllu sem heitir mannúð og mannréttindi, bara af því að þau líta ekki út eins og við hin. Við Íslendingar erum fámenn þjóð, samfélag okkar myndi einfaldlega ekki ganga án framlags fólks af erlendum uppruna, og því ættum við miklu frekar að bjóða fólk velkomið sem hingað vill koma í leit að betra lífi.

Framtíðin

Nýsköpun er orðin að tískuorði stjórnmálafólks. Þó svo að það sé gott og blessað, enda ekki langt síðan frumkvöðlar voru hreinlega litnir hornauga, er ekki sama hvernig að nýsköpun er staðið. Eftir að ég sagði skilið við krísustjórnun og mannúðarstörf fluttist ég í Kísildalinn, þar sem ég aðstoðaði norræna frumkvöðla við að að feta sig í tækniheiminum vestanhafs. Þar fékk ég innsýn í alþjóðlega nýsköpunargeirann, sem bjóða þarf velkominn til Íslands. Tækifæri landsins sem uppspretta hreinnar orku og skapandi mannauðs eru nær endalaus, en til þess að við getum nýtt þau til fullnustu þarf að gera breytingar á styrkja-, skatta-, og fjármögnunarumhverfi nýsköpunar. Breytingar sem Píratar ætla að innleiða, fáum við til þess stuðning.

Það er langt síðan ég áttaði mig á að völd, titlar og persónulegur gróði hafa enga alvöru merkingu í lífinu. Það eina sem skiptir máli er að láta gott af sér leiða og nýta eigin reynslu, þekkingu og sambönd til þess að bæta það samfélag sem við lifum í. Við sem erum í þeirri öfundsverðu aðstöðu að geta gefið af okkur eigum að gera það – og þess vegna býð ég mig fram til Alþingis.

Gefa til baka

Það er langt síðan ég áttaði mig á að völd, titlar og persónulegur gróði hafa enga alvöru merkingu í lífinu. Það eina sem skiptir máli er að láta gott af sér leiða og nýta eigin reynslu, þekkingu og sambönd til þess að bæta það samfélag sem við lifum í. Við sem erum í þeirri öfundsverðu aðstöðu að geta gefið af okkur eigum að gera það – og þess vegna býð ég mig fram til Alþingis.

Þegar ég tók þá ákvörðun í byrjun árs að gefa kost á mér í þessa vegferð, þá horfði ég til þess hvaða flokkar á Alþingi væru með sömu hugsjón og ég. Ég vildi vinna með fólki úr ólíkum áttum sem að væri tilbúið að finna sameiginlegar lausnir á flóknum vandamálum samfélagsins. Fólki sem vildi sjá bætt vinnubrögð á Alþingi. Fólk sem léti ekki valdagræðgi, spillingu og hagsmunatengsl lita ákvarðanir sínar. Það var því auðveld ákvörðun að bjóða fram krafta mína í annað sætið hjá Pírötum í Suðvesturkjördæmi.

Höfundur er frambjóðandi Pírata í Suðvesturkjördæmi

Upprunaleg birtingVisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...