Nýtum sveigjan­leika í skóla­málum til að létta á sam­göngum

Í sveitarstjórnarkosningum árið 2018 náðum við Píratar í Kópavogi þeim áfanga að ná inn fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs, ég tók í kjölfarið sæti í Umhverfis og samgöngunefnd Kópavogs. Í erindisbréfi nefndarinnar er henni ætlað að sinna stefnumótun um almenningssamgöngur. Það kom mér því á óvart að frétta af sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu í fjölmiðlum. Á því fékk ég þær skýringar einar að vinnuhópur sem innihéldi ráðherra og bæjarstjóra gæti ekki tafið sig á því að blanda of mörgum aðilum í vinnuna.

Horfum heildrænt á vandann

Samgöngusáttmálinn er metnaðarfullur en ekki að fullu fjármagnaður, búast má við vegtollum strax á næsta ári nema til komi önnur fjármögnun. Þá verður lítill hluti samgöngusáttmálans kominn til framkvæmda. Hefði ég komið að sáttmálanum myndi ég leggja til að horfa heildrænt á vandann. Vegakerfið á höfuðborgarsvæðinu annar ágætlega umferð utan álagstíma og nýting almenningssamgangna er mun meiri á álagstímum en utan þeirra.

Aðlögum þjónustuna að þörfum fólks

Þegar um er að ræða mikla fjárfestingu er brýnt að við leysum rétt vandamál. Stór hluti vinnandi fólks hefur nokkurn sveigjanleika í því hvenær það sinnir vinnu. Þann sveigjanleika er oft ekki að finna í þjónustu sveitarfélaga. Ég tel að margir myndu kjósa þann kost að vera ekki að ferðinni á háannatíma en eiga ekki kost á því vegna opnunartíma leikskóla og frístundaheimila og það munar um hvern bíl á álagstímum.

Tökum tillit til þarfa barna og unglinga

Í heildrænni nálgun eru tækifæri til að auka lífsgæði fólks mikið. Líkamsklukka unglinga er ekki endilega vel fallin til þess að vakna klukkan sjö en ef skólinn byrjaði klukkan tíu væri það ekki vandamál, fyrir yngri börnin mættu frístundaheimili og leikskólar opna sjö á morgnanna og loka sex á kvöldin. Þá myndu börnin mæta á frístundaheimili í stað skóla og verða sótt þangað og börn sem labba í skólann gætu það í björtu nær allt árið. Ég er með þessu ekki að leggja til að börnin yrðu í 11 tíma vistun heldur væri í boði allt að 8 tíma gluggi yfir daginn. Með því að skólinn byrjaði klukkan tíu skapaðist jafnframt möguleiki til íþróttaæfinga á morgnanna sem myndi stuðla að mun betri nýtingu á íþróttamannvirkjum.

Eflum leikskóla og frístundaheimili

Til þess þyrftum við að efla starf leikskóla og frístundaheimila, enda rúmast þetta ekki að fullu innan núverandi fjárhagsramma. Ef við erum reiðubúin að setja 120 milljarða í að leysa verkefnið samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, getum við vel nýtt eitthvað af fjármunum í önnur verkefni sem jafnframt bæta umferðina. Þetta þarf líka að vinna í góðu samráði við starfsfólkið enda er það lykilatriði í að dæmið gangi upp. Þessi fjárfesting gæti síðan vel skilað sér fjárhagslega og í verulega bættum lífsgæðum barna og foreldra þeirra.

Breyting sem að myndi nýtast öllum

Með því að dreifa umferðinni yfir daginn mætti draga úr bæði heildarmengun og mengunartoppar yfir daginn myndu minnka. Með léttari umferð aukum við lífsgæði fólks, við jöfnum álag á Strætó og fólk fengi raunverulega frelsi til að nýta sér sveigjanlegan vinnutíma.

Á sama tíma myndum við einfalda líf þeirra sem vinna utan núverandi opnunartíma leikskóla og frístundaheimila, t.d. vaktavinnu og verslunarfólks. Þennan ávinning gætum við líka fengið hratt. Allir hinir myndu síðan njóta þess að komast leiðar sinnar í minni umferð eða strætisvögnum sem ekki væru troðfullir af fólki.

Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Pírata fyrir alþingiskosningar 2021.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...