Ás­laug Arna skriplar á skötu – eins og Hanna Birna forðum

Eins og Hanna Birna forðum

Eins og einhverja lesendur rekur minni til hrökklaðist Stefán Eiríksson, lögreglustjóri úr embætti vegna óeðlilegra afskipta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, ráðherra dómsmála, af rannsókn á lekamálinu svokallaða. Svo fóru leikar að Hanna Birna sagði sjálf af sér eftir langdregna slímsetu, löngu rúin trausti almennings – og meira að segja pólitískra samherja.

Ég ætla ekki að fjalla nánar um málavexti þessa máls, en það er sérlega áhugavert að sjá hvernig HBK sá villur síns vegar varðandi samskipti sín við lögreglustjórann (reyndar ekki fyrr en öll sund voru lokuð).

Þetta má finna í áliti hins fjársvelta Umboðsmanns Alþingis, nr. 8122/2014:

„Jafnframt lýsti fyrrverandi ráðherra því yfir að það hefðu verið mistök af hans hálfu að eiga samskipti við lögreglustjórann vegna rannsóknarinnar meðan hún stóð yfir. Fyrrverandi ráðherra sæi nú að þessi samskipti hefðu hvorki verið fyllilega samrýmanleg stöðu hans sem yfirstjórnanda lögreglumála né því að lögreglustjórinn var forstöðumaður þess embættis sem vann að rannsókninni. Fyrrverandi ráðherra vissi nú að lögreglustjórinn kom lagalega sem slíkur að stjórn hennar sem forstöðumaður þess embættis sem vann að rannsókninni […]. Þá tók fyrrverandi ráðherra fram að samskiptin hefðu ekki samrýmst nægilega hinni óskráðu hæfisreglu stjórnsýsluréttarins og ekki verið að öllu leyti réttmæt af hans hálfu gagnvart lögreglustjóranum.“

Svo mörg voru þau orð. Snúum okkur nú að stóra Ásmundarsalarmálinu.

Áslaug Arna hringdi í lögreglustjóra, í tvígang, á aðfangadag til að ræða frumrannsókn í sakamáli sem tengdist manninum sem hún á starf sitt undir, formanni flokksins hennar. Þá vakna nokkrar spurningar:

  • Gæti hugsast að þessi afskipti Áslaugar Örnu hafi „ekki samrýmst nægilega hinni óskráðu hæfisreglu stjórnsýsluréttarins og ekki verið að öllu leyti réttmæt af [hennar] hálfu“?
  • Gæti hugsast að Áslaug Arna sjái ekki „nú að þessi samskipti hefðu hvorki verið fyllilega samrýmanleg stöðu [hennar] sem yfirstjórnanda lögreglumála né því að lögreglustjórinn var forstöðumaður þess embættis sem vann að rannsókninni“?
  • Gæti hugsast að Áslaug Arna átti sig ekki á því að það hafi „verið mistök af [hennar] hálfu að eiga samskipti við lögreglustjórann vegna rannsóknarinnar meðan hún stóð yfir“?

Nú liggur fyrir að Dómsmálaráðherra hefur verið gert að mæta á fund Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis til að standa fyrir máli sínu. Fróðlegt verður að sjá hvaða skýringar verða lagðar fyrir nefndina, en vandséð er að þær muni nægja til að lægja þær öldur óánægju sem virðast rísa hærra og hærra meðal almennings.

Og það sem meira er: gera hinir stjórnarflokkarnir sig ánægða hugsanlegar skýringar? Verður kannski kosið strax í vor?

Höfundur er fyrrverandi Alþingismaður Pírata í Norðausturkjördæmi og frambjóðandi í prófkjöri flokksins vegna næstu Alþingiskosninga.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...